Pallalingurinn

Hvernig væri svo að kikja á grairkettir.bloggar.is fyrst þú ert að vafra!!!!

23.01.2007 21:51:48 / Palli

Er ég sá eini

Gott fólk ég segi hæ

Ekki segja mér að ég sé sá eini sem er búinn að fá nóg af öllum umræðum um Guðmund í Byrginu! Það er alveg sama á hvaða síðu maður fer alltaf sér maður að allir eru að tala um Guðmund Byrgishund.              En þar ætla ég nú að gera breytingu á því ég vil frekar tala um Gunnar vin minn í krossinum því við félagarnir ætlum að bjóða syndinni í kaffi og með því og kannski syngja nokkra óguðlega söngva og drekka svarta dauða í desert. Og vinsamlegast bið ég ykkur að virða það að Gunnsó bað mig um að afþakka öll blóm og kransa en ef þið viljið styrkja eitthvað þá er mótmæla ganga í bígerð. Við munum mótmæla að öllum þessum landa sé hllt niður, það væri nenfilega mikið ódýrara að fá bara að vera með eimingargræjurnar útí skúr því þá breytti engu þó að menn missi af ríkinu, mar ætti bara sprútt heima. En nú er ég farinn að leggja hausinn í bleyti

veriði sæl og stubbaknús á ykkur öl frá kvikindinu!

» 4 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 23:56:32 / Palli

Kannski kominn tími til

ákvað það að fyrst að ég er nú búinn að vera svo svakalega aktífur í að blogga þá er kominn tími fyrir smá rugl og ef þið sjáið eitthverjar villur sem þarf að leiðrétta þá endilega að senda línu


1. Það er dinglað hjá þér tvö að nóttu. Hver myndur þú vilja að það væri?
pizzasendill frá dominos

2. Yfirmaður þinn segir að hann muni veita þér launahækkun ef ...
ég myndi byrja að vinna


3. Þú í hnotskurn?
Æði


4. Hefur þú séð draug?
nei

5. Ánægður með líkama þinn?
Frjálslega vaxinn og kynferðislega kósý hell je

6. Ég myndi flytja til Akureyrar ef...
kirkjugarðurinn í kef væri fullur


7. Staður sem þú hefur búið á og saknar:
líður bara vel þar sem ég er sakna samt þjóðhátíðar

8. Vinna sem þú myndir aldrei starfa við, sama hvað þú fengir borgað:
þjónn í Herjólfi

9. Hljómsveit sem þér fannst "cool" þegar þú varst 13.
Land og synir voru aðalskíturinn í sveitinni þá

10. Þú vaknar upp eftir slæma martröð, í hvern myndir þú hringja?
118

11. Langar þér að eignast börn fyrir þrítugs?
Ég er bara nokkuð góður.

12. Sterkasta minningin þín úr framhaldsskólanum:
Ég er algjörlega laus við alla svoleiðis vitleysu

13. Einhvern tímann verið ástfangin af maka vinar?
nei samt alveg til í að taka í stundum haha

14. Mesta prakkastrik sem þú hefur gert í vinnunni?
Ég geri ekki grín á annara hlut takk fyrir

15. Hvorum foreldra þínum líkist þú meira, móðir eða föður?
Greyin hafa hvorug viljað líkjast mér

16. Eitthvað sem þú hefur alltaf viljað læra að gera:
Sjá typpið á mér án þess að nota spegil

17. Ennþá vinur fyrrverandi maka?
Maka?!!!! Hvað er það?

18. Hvar myndir þú vilja vera eftir 10 ár:
á Kúbu með einni 18 ára og til í tuskið

19. Eitthvað sem þú lærðir um sjálfan þig á þessu ári(2006):
Já ég er alltof rólegur í peningaeyðslunni þannig að ég þarf að taka mig á þar

20. Hvað langar þér í afmælisgjöf?
Stripppara eða heitan pott

21. Nefndu þrjá hluti sem þú gerðir í dag?
festi bílinn, lét bjarna og ragga moka og signa mig inná msn

22. Það síðasta sem þú verslaðir fyrir þig?
ískáp,sjónvarp,heimabíó, helluborð og ofn.

23. Er eitthvað hangandi undir baksýnisspegilnum í bílnum?
nei anskotinn hafi það ég var að þrífa bílinn ég ætla rétt að vona að það sé ekkert hangandi í honum

24.Hvað fékkstu þér í morgunmat?
pizzu, kók og marmaraköku með rjóma.

25. Hver í kringum þig er með flestu húðflúrinn:
Það mun vera hlynur hann er eins og eitt stórt veggja krot

26. Hvaða þrjár hljómsveitir sást og heyrðir þú síðustu í:
queen, Guns and roses og nirvana

27.Hvað sefur þú að jafnaði í marga klukkutíma á sólahring?
alltof stutt, vinnan á það til að trufla það allverulega

28. Hefur þú einhvern tímann verið bundinn?
já ég er alltaf tímabundinn

29. Hvað hefðir þú frekar vilja vera gera þessa stundina?
Leika mér á vélsleða

30. Hvaða nafn kemur fyrir fremst í símaskránni þinni?
Addi sykurpúði

31. Hvenær varst síðast vitni af slagsmálum?
man það ekki,það er alltaf einhver læti í Keflavík

32. Hvaða áfenga drykk drakkstu þú síðast?
vodka og redbull

33. Finnst þér gott að láta toga í háríð þitt?
nei hárið er í stikk

34. Nefndu þrjá staði sem þú myndir vilja ferðast til:
Kúbu, Brasilíu og Ítalíu

35. Ertu góð/ur á skautum?
Mér var boðið að fara í atvinnu mennskuna en ég dró mig í hlé vegna anna í áfengisdrykkju

37. Nefndu eitthvað sem þér myndi langa í en væri flokkað undir óvenjulegt.
mér langar í svarta konu í bleikum dreifbýlistúttum sem er til í að þrífa og vaska upp

39. Hvað finnst þér um BRAD PITT?
seigur hann er að flengja Angelinu jolie

40. Nefndu þann vin sem þú átt mest sameiginlegt með?
Bjarni, fyrir utan hvað hann er drykkfeldur og öfugur og matvandur og tilfinningalega bældur. bíddu kannski eigum við ekki svo mikið sameiginlegt

41. Hvaða litur er á táneglunum þínum?
hef ekki séð þær lengi þanni gað ég segi pass

42. Við hvern talaðir þú síðast við í síma? Bellu í 118


43. Átt þú eitthvað með hauskúpu á?
já Rakspírann minn

44. Hefur þú ferðast mikið innanlands?
já ég hef meira að segja komið til Grindavíkur

45: Hefur þú ferðast til Afríku?
nei en væri alveg til í það samt gott að hafa smokk með sér þar

46. Nefndu þrjár manneskjur sem þú myndir treysta fyrir lífi þínu?
Gísli,Eiríkur og Helgi, helst allir saman þá ná þeir 1/4 úr heilasellu

47. Síðasta mynd sem þú sást?
one night in Paris

48. Hvar varst þú þegar þú fékkst fyrsta kossinn?
ertu klikk ekki helduru virkilega að ég muni það, man varla hvar ég missti sveindóminn

49. Síðasta spil sem þú spilaðir?
Kani

50. Leður eða Latex?
Leður baby

51. Hefur þú fengið glóðurauga?
já helvítis pólverjar

52. Á hvaða videoleigu ferð þú helst á?
þessa með minnstu sektinni

53. Hefur þú gengið í sokkabuxum?
já því miður!!!!!!

54. Þekkir þú einhvern sem er í fangelsi?
ekki vel

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 21:05:16 / Palli

Hvað er málið?

 Halló ég verð nú bara að spyrja ykkur útí þetta! Nú er búið að minnka það niður í 5 km hraða yfir hámarkshraða sem maður sleppur með að fá sekt fyrir. Hvað er málið?

Ekki halda þessi rúfföt virkilega að þetta bæti hraðakstur? Þetta er bara til að pirra þennann venjulega jóa sem keyrir nokkuð löglega en samt  ekkert glæfralegt. Eitthver sem keyrir á 200 km hraða er nokkuð skítsama um þessi viðvik. Breytir hann engu máli! Ég held að það væri nær að gera eitthvað róttækt í þeim málum heldur en að pirra alla aðra sem keyra eins og menn, ég endurtek eins og menn ekki eins og konur. Og hvernig væri nú að taka frekar á þessu liði sem keyrir á 60-70 á brautinni og þar sem er 90 km hámarkshraði!

Kv Palli litli. ps endilega að koma þínu viðhorfi á framfæri.

» 12 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 23:24:10 / Palli

hey hó

Bara aðeins að uppfæra dagsetninguna á dagbókinni.

Kallinn er nú ekkert lítið activeur í að blogga, ég er ekki bara boddíið!

Palli kristó

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 22:43:54 / Palli

Halló

Komiði heil og sæl.

það eru margir búnir að spyrja hvort að ég sé nokkuð dauður en svo er nú ekki. Ég er bara búinn að vera að vinna út í eitt og allt að ske. Ég er td að innrétta aðra íbúð í skúrnum og ýmsar hugmyndir í litla kollinum á Pallaling. Þannig að þarna hafiði það ég er  ennþá feitur og fjörugur. Bara ekki búinn að djamma mikið það fylgir þessu bara.

Kv Palli litli

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 15:51:15 / Palli

Palli Litli

Halló. Djöfull er maður nú búinn að vera slappur síðustu 2 vikurnar. Ég er búinn að vera með beinverki og eitthvað shitt. En skítt með það, ég kann ekkert að setja margar myndir inn í einu og ég er sá óþolinmóðasti ever þannig að ef að þið viljið sjá myndirnar mínar þá verðiði að koma og sýna mér þetta. Og svo er ég að leita að konu sem hefur gaman af því að þrífa og vantar stað til að þjálfa þá kunnáttu. Einnig er ég að leita að konu sem vill leika um helgar. Hæfniskröfur eru eftirfarandi: þarf að geta sogið lödu samara 82 módelið með öskubakka afturí í gang í gegnum pústið, Þarf að komast innum hliðarrúðu á Bláum yaris án allra sleipiefna, borðar ekki Prince Polo í bréfinu og fer ekki í stígvélum í bað. En ekkert  bdsm takk kærlega fyrir.

Kv Palli litli


» 9 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 16:43:45 / Palli

Hvað er málið

Halló!

Nú liggur maður bara veikur heima eftir að hafa verið að drepast í bakinu alla helgina.

Ég var nefnilega dobblaður til að koma í Kraftakeppnina sem var á Ljósanótt. Maður á nú ekki elveg heima þarna en what the fuck, ég hef nú gert mig af fífli fyrir minni hluti. En þetta heppnaðist allt svona æðislega illa að þegar ég var í annari þraut þá var ég kominn með 90 kg yfir hausinn á mér og missti jafnvægið og datt aftur fyrir mig en til allarar hamingju þá var Junes fyrir aftan mig og náði að stoppa mig áður en ég fór inní áhorfenda hópinn með drumbinn á lofti og ég varð svo brjálaður að ég stökk á lappir með helvítis drumbinn í höndunum og ætlaði að gríta helvítinu til tunglsins, bara á reiðinni. En ég fékk í bakið í öllum látunum, brakið var á við ventlaglamur í galli lödu. Steini Páls fékk líka í Bakið og var fluttur í burtu með Sjúkrabíl, Það er talið að hann hafi tognað á baki.

Slöpp kveðja Palli Kristó


» 15 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 01:35:00 / Palli

3300 Km

Jæja ég og Addi skelltum okkur saman í smá ferðalag og það tórði í litla 10 daga.

Dagur 1

Við keyrðum á Kleppjárnreyki og gistum þar í húsi sem fjölskylda Adda á og svo vöknuðum við um sólarupprás og lögðum strax af stað. Og þetta var um hádegi fyrir þá sem ekki vita hvenær sólin kemur upp. Keyrt var uppá Arnavatnsheiði og þar ákváðum við af því að veðrið var svo geggjað gott að fara að veiða í eitthverjum polli og fengum við 2 klst síðar að vita að það væri enginn fiskur í þessum polli. þannig að við brutum veiðistangirnar, af því að við erum svo heflaðir. en svo var keyrt áleiðis að Arnarvatni stóra og þar voru bara ekkert nema heill hellingur af flugum, þannig að við keyrðum bara uppá Eyvindarstaðarheiði og þar gerðum við okkur lítið fyrir og fengum okur bjór. hehehe við ákváðum að taka 2 kippur með í þessa ferð því að þetta átti ekki að vera nein fyllerisferð en við þurftum að koma 3 við í ríkinu á leiðinni.

 

Dagur2 fórum að reyna að veiða gæsir en ég er greinilega of stór til að geta falið mig þannig að það er búið að gera mig útlægann á hálendinu.

Dagur3

Svipað farið með þennan dag og síðasta. en við ákváðum að fara niður í Blöndudal og gista þar hjá Frænda mínum og Konunni hans og við ætluðum að vakan kl 4 um morguninn og fara að reyna að murka líftóruna úr eitthverjum málleysingjum. En það vildi ekki heppilegra til en að við fórum ekki að sofa fyrr en kl 3 blindfullir og vorum þá búnir að seinka vöknun til 5 en vöknuðum á hádegi.Drulluþunnir.

Dagur 4

Lögðum uppí ferðalag yfir Kjalveg og svo áleiðis Landmannaleið og svo kíktum við á Ljóta poll og ég komst að því að hann er ekkert rosalega ljótur.svo tjölduðum við í Landmannalaugum og grilluðum þar og fengum okkur bjór og svo ætluðum við að fara að rugla í eitthverjum túristum en þeir voru allir farnir að sofa, blíða pakkið.

Dagur 5

Vöknuðum um 10 leitið og fórum á settið til að míga og tannbursta okkur, sem er að sjálfu sér ekkert frásögufærandi nema það að þar var gella að þrífa sem að var svo flott að ég er búinn að vera með flaggað í heila síðan. Svo fórum við Fjallabak nyrðra og við skelltum okkur austur á Egilsstaði og þar vorum við að leita að stað til að hvíla okkur og þar var ekki séns að fá gistingu, við hringdum út um allt og það var allstaðar fullt. Við enduðum á Eskifyrði og gátum loksins fengið ikkur bjór og horft á Supernova og farið í sturtu við lyktuðum eins og loðnubræðla í 35 stiga hita.

Dagur 6

Lyktum eins og álfar á leiðinni á hóruhús og til í tuskið. ákváðum að reyna að finna stað til að fá að fara í morgunflug. Og fórum á bæ í Fljótsdalnum og þar hittum við Kvenskörung sem tróð allhressilega ofan í Palla litla. Ég bankaði og hún kom til dyra og ég var kurteisin og sleikjan uppmáluð og sagði bara góðann daginn og sagði hvað hún segði gott og þá sagði hún ég er fúl eins og í gær hvurskonar helvítis spurnigar eru þetta eiginlega. Og svo hló hún  bara. ég varð svo orðlaus að Addi varð að tala við hana. En það var nú ekki vandamálið að fá að skjóta hjá henni, þannig að við ákváðum að skella okkur á Kárahnjúka til að nýta daginn. Þetta er ekkert smá mannvirki þessi steypuklessa þarna. Og þar sá maður hrísgrjón hangandi utan á stíflunni og þeir litu bókstaflega út eins og hrísgrjón því maður þurfti að horfa úr svo mikilli fjarlægð en ég held að það hafi verið naglbíta lausi dagurinn hjá þeim þennan dag þannig að við fengum ekki að sjá neinn detta niður. Bummer. Við ákváðum að sofa í bílnum svo að við myndum ekki sofa yfir okkur eins og vanalega. og við vöknuðum kl 3 og fórum í hergallann og þá var sáum við að það var kominn húsbíll með þýskri fjölskyldu við hliðina á okkur. Og ég sé alveg kallinn fyrir mér líta út um gluggann og sjá 2 hlunka með byssur hehe redneck hvað.

Dagur 7

Við hittum náttúrulega ekki rassgat frekar en vanalega en við náðum 2 gæsum sem brotlentu sökum hláturskrampa og við sögðum náttúrulega öllum að við hefðum smellhitt þær.En svo fórum við uppá Möðrudalsöræfi og þegar þar var komið við sögu þá var Addi orðinn grjótbarinn á nefinu eftir að vera með hausinn úti því að þegar að maður er búinn að éta nammi og draslfæði í viku samfleitt þá er söngurinn úr hringvöðvanum farinn að jafnast á við klassa óperu, og ég var búinn að banna reykingar í bifreiðinni þannig Addi gat enga björg sér veitt, hahahahaahahahah. En við ákváðum að sofa á Öræfunum um nóttina til að geta vaknað í morgunflug.

Dagur 8

Vöknuðum kl 4 og ákváðum að labba 2 km til að fuglarnir myndu ekki fælast bílinn og við biðum í 4 klst og sáum ekki einu sinni lóu. En þegar við vorum að labba að bílnum bitrir og pirraðir. þá heyrðum við í gæsahóp og svo þegar við sáum bílinn þá var ég mjög ánægður að hafa munað eftir að læsa bílnum því annars hefðu gæsinar farið að jeppast því að þær voru allar í kringum bílinn. spáið í því 4 km labb til einskis, Djöfull var ég brjálaður!!!!! En svo skelltum við okkur á Húsavík og þar hitti ég fullt af liði sem ég þekki þar. þar á meðal Hredda vin minn og hann bauð okkur í kvöldflug með sér og bróðu sínum. Og það kom hellingur af fugli en þær voru ekki að fíla eitthvað við okkur og lentu ekki í skotfæri. Við skutum nú samt hehehe nei segi bara svona.

Dagur 9

Föttuðum að við værum ekkert í 10 daga ferðalagi heldur bara 9 daga. Fóru í fýlu og drulluðum okkur heim kl 5 að morgni og fórum Sprengisandsleið heim með viðkomu í Landmannalaugum voru komnir heim um 1 leitið á hádegi það var svolítið asnalegt að vera kominn svona snemma heim frá húsavík 554 km sjáiði til. hehehe

 

Myndirnar koma inn bráðum.

Kv Palli


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 23:28:18 / Palli

Djamm

Jæja ég ákvað að kveikja á tölvunni og skrifa smá shitt. Þjóðhátíðin var síðustu helgi og það eru allir búnir að blogga svo mikið um hana að ég nenni því ekki líka. Við skulum bara orða það þannig að það var geggjað. hehe

En í gær var Sálarball og við byrjuðum kvöldið á því að fara í afmæli hjá Óskari og Sveini Örvari og þar var svamlað í bjór og bollu, þannig að ekki gekk maður beinn út úr þeirri veislu og svo skellti ég mér í gítar partý hjá Jónsa og þar drullaði hann yfir alla vinnufélagana af stakri snilld, byrjaði bara að spila og spinna haha. Og svo var skellt sér á ballið og þar dansaði ég svo mikið að ég var orðinn blautur í gegn að svita og svo að ég yrði ekki fyrir ofþornun þá drakk ég nú stíft líka. En þetta er held ég bara svei mér þá að þetta sé eitt skemmtilegasta ball sem ég hef farið á lengi. og svo var farið á Hápunktinn og þar var ekki hægt mikið á drykkjunni en svo voru eitthver slagsmál fyrir utan og ég og Steini Páls vorum í því að espa allt liðið upp um leið og eitthver róaði þetta niður, hahaha alltaf gaman að vera fífl. Svo skelltum við okkur inn á dansgólfið aftur og ég var í litla gírnum ekki slæmt að vera kominn með smá þol eftir allar æfingarnar hehehe. En svo kom upp tómt vesen á milli vinnufélaga minna og þá hætti ég bara að drekka áfengi og datt úr öllum gír, þannig að kvöldið endaði heima kl 7 með harðfisk og kristal horfandi á tomma og jenna. How sad is that. Og eini drátturinn sem ég fékk var sinadráttur og ekki bara einu sinni heldur þrisvar sinnum og nú labba ég eins og hæna sem er búin að vera með harðlífi í 2 vikur. En svona er lífið yfirdráttur og sinadráttur það er það eina sem maður fær. hahahaha

Þangað til næst Kv Palli Kristó


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 22:52:15 / Palli

Halló

Jæja þá er fyrstu útsendingu lokið og mjög margir búnir að tala við mig og segja að þetta hafi bara gengið mjög vel hjá mér, og að ég sé bara með nokkuð góða útvarpsrödd. En maður tekur þessu bara rólega og bablar eitthvað sniðugt næst inná milli. Ef að þið hafið eitthvað sniðugt handa mér til að tala um þá endilega að senda mér það á alli@kissfm.is">palli@kissfm.is.

En um helgina var haldið uppá afmælið hans Hilmars og bollan var kláruð á núll einni og þá var bara að demba sér í bjórinn og hann rann nokkuð ljúft niður skal ég segja ykkur, svo var kikt á djammið. Mér fannst samt soldið skítt hvað var lítið af liði sem mætti á stuðmenn en það var samt heavy mikið af liði á Hápunktinum.

Kv Palli


» 10 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 19:35:24 / Palli

Koma svo fólk commenta, ekki vera lufsur

Komiði sæl blessuð. Palli er mættur aftur sprelllifandi og heill, þó svo að síðasta helgi hafi tekið hressilega á. Við skelltum okkur nefnilega nokkrir til eyja og djömmuðum aðeins þar, og heppnaðist það svona vel bara. Ég fór á Lundann og var að sprella þar og fór að spjalla við gelluna sem er dj þar og fékk að fara í tölvuna og setja inn nokkur vel valin lög, svo kallar hún á mig og biður mig um að dansa við sig á dans gólfinu og þá labbaði ég á snúruna og reif tölvuna úr sambandi hahahaha það vakti ekki mikla lukku nærstaddra. En þetta reddaðist á endanum. En nú víkjum við að öðrum málum. Ég fékk nefnilega símhringingu í gær, og var boðið að vera með þátt á kiss fm á fimmtudagskvöldum milli 20-23. Þannig að nú er kallinn bara kominn í útvarpið aftur eftir smá bið. bara snilld

Kv Palli Litli


» 15 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 15:36:02 / Palli

Jæja Bloggið

Komiði sæl dömur mínar og hnerrar. Nú líður að þjóðhátíð og þar lætur maður sig nú ekki vanta! Þetta er nefnilega sjöunda skiptið í röð sem Palli litli mætir.og það verður alltaf skemmtilegra með hverju árinu! Maður fer niðrí dal að fá se´r reyktann lunda bara gott, en það besta við það er að ég hef fengið mer lunda frá fyrstu þjóðhátíð en það var ekki fyrr en 2003 sem ég vissi hvernig hann væri á bragðið. hin árin var ég svo fullur að það var allt eins á bragðið. En húkkaraballið finnst mér frábært,kannski 3-4000 manns og það fara svona 15 inná það restin er fyrir utan hehe. En Brekkan er alltaf best sérstaklega á sunnudeginum. nema þegar Egó komu og spiluðu það var magnaður andskoti, allir standandi og hoppandi í brekkunni haha maður fær gæsahúð bara að hugsa um það. En í ár verður hitað upp á gosloka hátíð. Það eru semsagt 2 fyllerisferðir´til eyja í ár. haha

 

Smá upprifjun kveðja Palli litli


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 23:52:39 / Palli

Þarna þekki ég þig sykurpúði

Jæja núna er komið að smá bloggi. það er búið að vera mikið að gera hjá mér í vinnunni og ýmsu öðru. Og svo er ýmislegt sniðugt framundan.Ég ákvað um daginn að gefa rauða krossinum föt og ég hreinlega heillaðist af starfi þessara sjálfboðaliða. Þannig að ég ákvað að hinkra og fékk mér nokkra öllara með liðinu og eitt leiddi að öðru og alltíeinu var ég kominn með umsókn í hendurnar og skrifaði allt eins skírt og ég gat hugsað og svo þegar ég vaknaði í þynnkunni þá var ég í flugvél á leiðinni til Kabúl að gera eitthvað shitt ég fríkaði alveg út, hugsaði með mér að ég væri ekki einusinni búinn að fá frí í vinnunni eða neitt. En svona var þetta bara þannig að ég ákvað að gera það besta úr þessu bara. Þegar við lentum í Kabúl var ég fljótur að splitta! Ég ætlaði ekki að fara að brjóta saman handklæði fyrir eitthvað veikt lið frekar slæst ég bara með hernum! En þegar ég var að húkka mér far þá tóku eitthverjir skæruliðar mig uppí og þeir áttu sko sprútt dauðans, ég held að ég hafi aldrei verið jafn ölvaður á ævinni. Þeir voru alveg að fíla þennann blindfulla Íslending sem þeir tóku uppí, sérstaklega þegar ég söng Búkollu fyrir þá hehe. Og þeir gerðu sér lítið fyrir og kynntu mig fyrir aðalskæruliðakvikindinu og sá er sko harður nagli hann þvoði sér ekki einusinni um hendurnar þegar hann var búinn að pissa! enginn smá köggull!!!!! En svo ákvað ég að skoða þenann bæ aðeins betur, maður hangir ekki lengi með svona liði. Þeir eru alltaf að sprengja sig í tætlur og ég var með hausverk þannig að ég var ekki að höndla hávaða.

Ég er að segja ykkur að það eru engar smá kellingar þarna, en ég skal segja ykkur að það er eins gott að binda góða slaufu á kvikindið svo að maður fái ekki gæludýr með drættinum. En ég kynntist alveg agalegri skutlu sem er mesti dickteaser sem ég hef hitt, en það er eitthvað sem var að heilla mig við þessa píu þannig að ég gekk á eftir henni þangað til að ég náði henni. Hún vildi bjóða mér strax í ferðalag til Kúbu og ég sagði bara well fuck it why not? Þegar við komum svo til Kúbu þá hneigðu sig allir fyrir henni og ég var ekki alveg að skilja. Svo fór hún að kynna mig fyrir fjölskyldunni sinni og þá fattaði ég afhverju állir hneigðu sig fyrir henni. Því að afi hennar er enginn annar en Fidel Castró. Ekkert smá skrall sem ég fór á með honum, það er nefnilega siður kúbu að ath hvort nýi tengdarsonurinn geti drukkið kúbverja undir borðið og ég stóðst heldur betur prófið, þannig að nú er búið aðra royal bera mig á Kúbu. Þannig að nú ek ég um  götur Havana á 62 módelinu af cadillac. Ég þarf samt að koma til Íslands á morgun það eru nefnilega tónleikar með Bubba Morteins og því ætla ég ekki að missa af ég ætla að reyna að draga Castró með mér en það kemur í ljós hvernig það gengur. en ég heyri í ykkur seinna

 

Kveðja Palli Litli


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 22:09:13 / Palli

Kveðja Palli litli.

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 01:39:50 / Palli

Halló

Nú vill ég að fólk standi sig í skoðanakönnuninni! Mig vantar nefnilega línuna sem væri best til að næla sér í klassa píu!

HAHAHAHAHAHAHA!

Kveðja frá Palla litla

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Fréttir
matur
Ofurbloggarar